Einka… hvað?

February 22, 2010

Um daginn, fór ég eins og gengur, að rökræða á “Facebook.”  Tilefnið var niðurskurður og þá snérist umræðan um niðurskurð í kvikmyndagerð. Ég ætla svo sem ekki að fara mikið útí, rökræðurnar né hvað mér finnst um þennan niðurskurð.

Það sem ég áttaði mig á var hinsvegar það, að eins og svo oft geta orð verið það sem veldur hvað mestum misskilning. Í námi mínu í Rotterdam, áttum við oft dagslangar rökræður, ekki um málefni heldur hvernig ætti að orða hlutina. Það getur verið gaman að sjá hvernig eitt orð getur átt svo margar merkingar og hvað eitt orð getur vafist fyrir mörgum.

Það orð sem ég er að velta fyrir mér núna eða það hugtak frekar, sem ég er mikið að hugsa um þessa dagana og reyndar hef hugsað um mjög lengi er Einka-þetta og Einka-hitt.

Ég ætla ekki að leggja í umræðuna hvort allt eða ekkert eigi að vera einkavætt, tel að þetta ætti svo sem að geta lifað svona nokkru jafnvægi, ef rétt er að staðið.

Það sem veltist hinsvegar fyrir mér, er hvað þýðir það að vera Einkaskóli, Einkabanki, Einkaspítali og svo framvegis.

Fyrir mér, er það að vera einka-eitthvað, það að vera sjálfstætt starfandi “fyrirtæki” sem er algjörlega óháð ríki og skattpeningum.  Fyrir mér er hugtakið að vera einka-eitthvað það að fólk er þá til í að borga meira, fyrir þá þjónustu sem er í boði í hvert skipti, því þetta einka-eitthvað er ekki niður greitt af ríkinu.

Það sem veldur mér samt hugarangri, þó ég sofi nú alveg á næturnar, er afhverju þegar hinar og þessar stofnanirnar eru einka-eitthvað eru þessar sömu stofnanir að fá peninga frá ríkinu? Er ekki einmitt hugsjónin sú að þetta einka-eitthvað geti starfað alveg án afskipta ríkisins?

Auðvitað viðurkenni ég að mín hugmynd að einka-eitthverju er bara mín, en hefur að sama skapi kannski blindað mig.  Vegna þess að oft í rökræðum, rétt eins og um daginn, setti ég fram þá skoðun mína að það skjóti skökku við að kalla hitt og þetta einka-eitthvað en sé enn styrkt af ríkinu.

Þá er það oftast túlkað að ég sé algjörlega mótfallin því að það séu til einka-eitthvað. Það er hinsvegar alls ekkert málið. Megi þeir er vilja reka einka-sitt. Það fer bara í mig, þar sem min ímynd af þessu einka-öllu, er að það sé sjálfstætt starfandi fyrirtæki.” Því ætti það að mínu mati að vera alveg óháð ríkisstyrkjum.

Það væri gaman að fá að heyra hvað þið leggið í merkingu hugtaksins, einka-eitthvað.

Yfir og út

Er þetta allt það sama?

February 9, 2010

Til að gera ekki alla alveg æra á Facebook, hef ég ákveðið að fá almenna útrás fyrir öllum pælingum mínum hér.

Mig langar að byrja á smá vangaveltum um trúmál og stjórnmál.

Fyrir mér er þetta nefninlega farið að virðast var nákvæmlega það sama.

Síðust vikur og mánuði, hef ég tekið eftir að það virðist vera að stjórnmál eru nýju trúfélögin.

Til að mynda er fólk sem er fætt inn í hinu ýmsu trúfélög, oft virðist erfitt að stundum jafnvel ógerlegt að segja sig úr trúfélaginu. Hér á landi og líklegast víðar, virðist eins og sumir séu fæddir inn í ákveðna stjórnmálaflokka.  Það er að vísu auðveldara að koma sér úr þessum flokkum og sumir reyndar skipta bara um flokka svona jafn oft og íþróttamenn skipta um nærföt.  Þeir sem oftast skipta um flokka eru þá þeir sem virðast engin völd fá í hendurnar, eða verða fyrir einelti samflokksmanna, vegna þess að þá er viðkomandi ekki 100% sammála öllu sem FLOKKURINN ákveður.

Við trúfélög hefur allskonar spilling og viðbjóður grasserað og er enn að koma upp allskonar miður falleg mál. Það virðist samt vera að sumir haldi áfram að styðja trúfélögin sín og annaðhvort sópa þessum ósóma undir teppið eða jú Guð fyrirgefur allt.

Þetta er einmitt svo svipað, að mér finnst, með stjórnmálaflokkana.  Spillingarmál virðast vera útum allt og enginn flokkur er undanskilinn því að mér virðist.  Samt, er eins og þeir sem “halda með” sínum flokki, sé bara nokk sama. Finna leiðir til að fyrirgefa, klóra yfir eða jafnvel leiða hjá sér þann ósóma sem viðgengst.  Aðrir spretta upp útum allt og verja sína flokksmenn, þá sérstaklega á bloggum.  Kommenta eins og þeir, þau, fái borgað fyrir. Mikið finnst mér það alltaf gaman, að sjá hvernig það er alltaf hægt að taka upp handskann fyrir sig og sína en um leið og aðrir brjóta af sér kemur sama fólk og gargar sem aldrei fyrr.

Hér á Íslandi erum við svo heppin að eiga þjóðkirkju, þeir sem tilheyra henni fá að borga hluta af sínum skatti í að viðhalda kirkjum landsins, prestum og því sem fylgir.  (seinna mun ég svo rita góðan pistil um hvað mér finnst um þetta fyrirbæri) Kirkjan fær því jú góða summu frá ríkissjóði til að halda þessu öllu gangandi.  Eitt sinn gengu líka kirkjunnar menn milli hús og rukkuðu fólk, svona til að það kæmist alveg örugglega til himnaríkis.  Í dag, skammta stjórnmálaflokkarnir sér sjálfir peninga. Þar er ekki um að ræða eitthverjar svona smá upphæðir, við erum að tala um 300.000.000 + frá ríkissjóði og svo 100.000.000+ frá borgarstjórn.  Þetta þykir að sjálfsögðu bara hið fínasta mál.  Jú eitthvernveginn verða þessi grey að getað fjármagnað árshátíðum, auglýsingaherferðum og öllu sem því við kemur.  Flokkarnir eiga svo jú oftast, eða leigja ofsa fínt skrifstofu pláss og eitthver verður nú að borga undir það.  Þetta finnst mér með öllu ósæmilegt.

Það má halda áfram með listann, hér reyni ég samt að varpa upp þeirri spurningu – hver er munurinn á trúarbrögðum og stjórnmálaflokkum?

Endilega leggið orð í belg.

Kv

Unnsteinn

Hello world!

February 9, 2010

Welcome to WordPress.com. This is your first post. Edit or delete it and start blogging!


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.