Til að gera ekki alla alveg æra á Facebook, hef ég ákveðið að fá almenna útrás fyrir öllum pælingum mínum hér.
Mig langar að byrja á smá vangaveltum um trúmál og stjórnmál.
Fyrir mér er þetta nefninlega farið að virðast var nákvæmlega það sama.
Síðust vikur og mánuði, hef ég tekið eftir að það virðist vera að stjórnmál eru nýju trúfélögin.
Til að mynda er fólk sem er fætt inn í hinu ýmsu trúfélög, oft virðist erfitt að stundum jafnvel ógerlegt að segja sig úr trúfélaginu. Hér á landi og líklegast víðar, virðist eins og sumir séu fæddir inn í ákveðna stjórnmálaflokka. Það er að vísu auðveldara að koma sér úr þessum flokkum og sumir reyndar skipta bara um flokka svona jafn oft og íþróttamenn skipta um nærföt. Þeir sem oftast skipta um flokka eru þá þeir sem virðast engin völd fá í hendurnar, eða verða fyrir einelti samflokksmanna, vegna þess að þá er viðkomandi ekki 100% sammála öllu sem FLOKKURINN ákveður.
Við trúfélög hefur allskonar spilling og viðbjóður grasserað og er enn að koma upp allskonar miður falleg mál. Það virðist samt vera að sumir haldi áfram að styðja trúfélögin sín og annaðhvort sópa þessum ósóma undir teppið eða jú Guð fyrirgefur allt.
Þetta er einmitt svo svipað, að mér finnst, með stjórnmálaflokkana. Spillingarmál virðast vera útum allt og enginn flokkur er undanskilinn því að mér virðist. Samt, er eins og þeir sem “halda með” sínum flokki, sé bara nokk sama. Finna leiðir til að fyrirgefa, klóra yfir eða jafnvel leiða hjá sér þann ósóma sem viðgengst. Aðrir spretta upp útum allt og verja sína flokksmenn, þá sérstaklega á bloggum. Kommenta eins og þeir, þau, fái borgað fyrir. Mikið finnst mér það alltaf gaman, að sjá hvernig það er alltaf hægt að taka upp handskann fyrir sig og sína en um leið og aðrir brjóta af sér kemur sama fólk og gargar sem aldrei fyrr.
Hér á Íslandi erum við svo heppin að eiga þjóðkirkju, þeir sem tilheyra henni fá að borga hluta af sínum skatti í að viðhalda kirkjum landsins, prestum og því sem fylgir. (seinna mun ég svo rita góðan pistil um hvað mér finnst um þetta fyrirbæri) Kirkjan fær því jú góða summu frá ríkissjóði til að halda þessu öllu gangandi. Eitt sinn gengu líka kirkjunnar menn milli hús og rukkuðu fólk, svona til að það kæmist alveg örugglega til himnaríkis. Í dag, skammta stjórnmálaflokkarnir sér sjálfir peninga. Þar er ekki um að ræða eitthverjar svona smá upphæðir, við erum að tala um 300.000.000 + frá ríkissjóði og svo 100.000.000+ frá borgarstjórn. Þetta þykir að sjálfsögðu bara hið fínasta mál. Jú eitthvernveginn verða þessi grey að getað fjármagnað árshátíðum, auglýsingaherferðum og öllu sem því við kemur. Flokkarnir eiga svo jú oftast, eða leigja ofsa fínt skrifstofu pláss og eitthver verður nú að borga undir það. Þetta finnst mér með öllu ósæmilegt.
Það má halda áfram með listann, hér reyni ég samt að varpa upp þeirri spurningu – hver er munurinn á trúarbrögðum og stjórnmálaflokkum?
Endilega leggið orð í belg.
Kv
Unnsteinn
February 9, 2010 at 5:44 pm |
ánægð með þetta !! held það ættti að afnema þessa flokka fyrir fullt og allt það er bara heimskulegt að vera flokksbundinn því það er ekki séns að maður geti raunverulega verið sammála öllu sem einhver flokkur ákveður, það er bara heilaþvottur!